LÝSING

HEIMUR DÝRANNA voru vikulangar Listbúðir þar sem 8 ára grunnskólanemendur komu í fylgd bekkjarkennara sinna í Myndlistaskólann.  Nemendur vörðu öllum skólatíma sínum í Myndlistaskólanum þessa viku, þar sem kennarar Myndlistaskólans tóku á móti þeim og leiddu verkefnið.  Í Listbúðum er unnið með eitt ákveðið þema alla vikuna, með aðferðum myndlistar og á forsendum hennar.  Sérfræðingur á viðkomandi sviði er fenginn til að flytja fyrirlestur en að öðru leyti eru Listbúðirnar byggðar upp á nokkrum smærri verkefnum sem saman mynda eina heild eða KEÐJU.

Viðfangsefni HEIMS DÝRANNA er eins nafnið gefur til kynna dýr og heimurinn þeirra.  Athyglinni er sérstaklega beint að einkennum dýra og hvernig umhverfi og ytri aðstæður hafa áhrif á þau.  Af hverju eru ekki sömu dýr í öllum heimsálfum?  Hvernig eru dýrin ólík eftir því hvort þau búa í sjó, í lofti eða á landi?  Hefur veður og birta áhrif á útlit og einkenni dýra?  Af hverju eru til dæmis dýr sem búa á köldum svæðum öll með stutta útlimi og lítil eyru?  Getur það verið af því að ef eyrun væru stór myndu þau einfaldlega frjósa og detta af?  Og hvernig hefur umhverfið áhrif á skynfærin?  Hvaða skynfæri eru mikilvægust hjá dýrum sem búa í myrkiri?

Í Listbúðum er mikið lagt upp úr skissubók /dagbók sem nemendur vinna í jöfnum höndum alla vikuna.  Þar eru hugleiðingar og vangaveltur um viðfangsefnið og dagskrá Listbúðanna skráðar í mynd og /eða texta, allt eftir því hvað hver nemandi kýs.  Þessi bók verður góð heimild um vinnuna og tímann í Listbúðunum.

Helstu verkefni HEIMS DÝRANNA eru:

- DÝRATEIKNING sem síðar verður efniviður í dagbókina.

- Vettvangsferð í fjöru þar sem ýmsu fjörugulli er safnað og verður efniviður í smáatriði og einkenni á dýrunum. 

- DÝRIÐ MITT, dýraskúlptúr úr hænsnaneti og gifsgrisjum.

- DÝRABÓK, dagbók /skissubók.

Í lok Listbúða er foreldrum og forráðamönnum boðið á sýningu í Myndlistaskólanum að sjá afrakstur vikunnar. 

Umræður eru mikilvægur hluti Listbúða.  Inn á milli er staldrað við og það sem komið er skoðað og rætt.  Nemendur eru leiddir áfram í verkefnum með opnum spurningum og fyrir lokasýninguna sest hópurinn niður og ræðir saman;  vikan er rifjuð upp og nemendur spurðir hvað þeir hafa lært.  Þannig eru þeir vel undirbúnir til að taka á móti sýningargestum og leiða þá um sýninguna.