LÝSING

STÆRÐFRÆÐILEG FEGURÐ voru vikulangar Listbúðir þar sem 8 ára grunnskólanemendur komu í fylgd bekkjarkennara sinna í Myndlistaskólann.  Nemendur vörðu öllum skólatíma sínum í Myndlistaskólanum þessa viku, þar sem kennarar Myndlistaskólans tóku á móti þeim og leiddu verkefnið.  Í Listbúðum er unnið með eitt ákveðið þema alla vikuna, með aðferðum myndlistar og á forsendum hennar.  Sérfræðingur á viðkomandi sviði er fenginn til að flytja fyrirlestur en að öðru leyti eru Listbúðirnar byggðar upp á nokkrum smærri verkefnum sem saman mynda eina heild eða KEÐJU.

Viðfangsefni þessara listbúða er myndræn stærðfræði.  Markmiðið er að opna augu nemenda fyrir því að stærðfræði er annað og meira en að reikna saman tölur, og að stærðfræðin er allt í kringum okkur.  Stærðfræðihugtökin sem fengist er við eru:  speglun, hliðrun og snúningur og hvernig þau fyrirbæri tengjast munsturgerð; brotar (eða fraktalar) og negatífa og pósitífa.

Helstu verkefni Listbúðanna STÆRÐFRÆÐILEG FEGURÐ eru:

- ÁVEXTIR, STÆRÐFRÆÐI OG GRÆNMETI, en þar eru stærðfræðihugtökin speglun, samhverfa og brotar skoðuð í samengi við náttúruleg form sem finna má í ávöxtum og grænmeti.

- STÆRÐFRÆÐILEG MUNSTUR, þar sem farið er í einfaldar aðferðir í munsturgerð;

- NEGATÍFA – PÓSITÍFA,  þar sem unnið er með þessi hugtök með núningsþrykki, leirþrykki og afseypu.

Í Listbúðum er mikið lagt upp úr skissubók /dagbók sem nemendur vinna í jöfnum höndum alla vikuna.  Þar eru hugleiðingar og vangaveltur um viðfangsefnið og dagskrá Listbúðanna skráðar í mynd og /eða texta, allt eftir því hvað hver nemandi kýs.  Þessi bók verður góð heimild um vinnuna og tímann í Listbúðunum.  Í lok Listbúða er foreldrum og forráðamönnum boðið á sýningu í Myndlistaskólanum að sjá afrakstur vikunnar. 

Umræður eru mikilvægur hluti Listbúða.  Inn á milli er staldrað við og það sem komið er skoðað og rætt.  Nemendur eru leiddir áfram í verkefnum með opnum spurningum, og fyrir lokasýninguna sest hópurinn niður og ræðir saman;  vikan er rifjuð upp og nemendur spurðir hvað þeir hafa lært.  Þannig eru þeir vel undirbúnir til að taka á móti sýningargestum og leiða þá um sýninguna.