TEIKNAÐ
Þú skalt byrja á að velja þér teikningu eða hluta teikningar til að teikna eftir. Það getur verið gott að nota hjálpartæki eins og ramma skorinn út úr þykkum pappa til að velja sjónarhorn eða hluta teikningar. Þegar þú horfir í gegnum rammann er auðveldara að einangra viðfangsefnið. Þú getur líka þrengt og víkkað sjónarhornið með því að færa ramman nær þér og fjær – eins og þegar súmmað er í myndavél. Þegar þú teiknar skaltu fylgja fyrirmyndinni eins vel og þú getur. Teikningin þín á að vera línuteikning eins og fyrirmyndin.
GATAÐ
Þegar teikningin er tilbúin leggurðu hana á einangrunarplastplötu og gatar hana. Það er gert með því að stinga göt með síl eða grófri stoppunál í línurnar í teikningunni. Nú ertu komin með gataða teikningu sem hægt er að nota eins og götuðu teikningarnar í Íslensku teiknibókinni til að færa teikninguna yfir á annan flöt.
TEIKNAÐ MEÐ BLEKI
Nú leggurðu gatateikninguna á pergament eða annan pappír sem lítur út fyrir að vera gamall og stingur með blýanti í gegnum götin. Það er gott að festa gatateikninguna með límbandi svo hún færist ekki til á meðan hún er færð yfir á pergamentið. Þegar þú ert búinn að stinga í gegnum öll götin losarðu gatateikninguna af.
Nú ertu kominn með punktateikningu á pergamentið. Þá tekurður fram fjaðurstafinn og blekið og dregur á milli punkatanna.